Já einingahús, hver er kosturinn við að byggja einingahús. Nú er eithvert æði fyrir einingahúsum hér á landi, mér hefur alltaf þótt bygging einingahús hér á landi óhagstæð vegna mikils álags frá vorri náttúru. En nátturulega getum við hagað seglum okkar eftir vindi og reist verkleg og trygg einingahús. Kostur einingahúsa er sá að fljótlegt er að reisa þau og fullklára eftir að þau eru komin upp. Þetta getur sparað tíma, fyrirhöfn og pening.
Aftur á móti þarf að athuga að ekki eru öll hús sem koma til með að vera ódír þótt þau séu byggð úr einingum og séu fljót reist. Hönnunarvinna sem lyggur á bakvið hönnun einingarhúsa er miklu meiri en hönnunar vinna sem lyggur á bakvið hús sem byggt er á hefðbundin hátt. Tildæmis getur oft reinst erfitt að ná nægum styrkleika í hús sem byggt er úr steyptum einingum, vegna þess að það eru að slitna í sundur á mörgum stöðum og tapar með því innspennu. Þá þarf ofta að nota dírar leiðir til þess að ná nægum styrk í húsið. Í dag eru flestar einingaverksmiðjur hér á landi að þróa sig áfram, sem þíðir að við eigum lángt í land þar til við getum státað okkur að góðum lausnum við gerð þessara húsa. þángað til er, og verður hönnun þeirra alltaf dír. Einnig ber að athuga að uppsettning þessara húsa er dír, tildæmis kostar hífing hverrar einingu fyrir sig á milli 70 til 100 þúsund kr.
Arkitektar taka litið sem ekkert tillit til þess hvort byggingin skuli vera byggð á hefðbundin hátt eða úr einingum. Ég leyfi mér að segja þetta því þannig lítur það út.Þeir halda kanski að þeir séu að því, en gera sér ekki grein fyrir hversu veiga lítil þessi hús eru miðað við þau hús sem byggð eru á hefðbundin hátt. Nefna má atriði eins og stóra glugga sem ná upp í loft þannig að engin burður er eftir undir loftaplötur, stórir gluggar í horn húsa þannig að ekkert er til að bera húsið uppi, engar burðarsúlur meiga sjást og svona mætti lengi telja. Áraun á byggingar eru tog og skerkraftar, lítið sem ekkert úrval af tengijárnum er að fá hjá einingaverksmiðjunum, sem geta móttekið þessa krafta. Þess vegna þarf tæknifræðingurinn að hanna mikið af þesskonar dóti jafnhliða með hönnun burðarvirki hússins. Þetta er vinna sem sést ekki út á við og gerir það að verkum að mörgum sést yfir hana.
Það má ekki taka þessu þannig að ég sé á móti einingahúsum. Heldur vil ég benda á að athuga þarf vel áður en að hönnunar vinna hest, hvort að það borgi sig að byggja húsið úr einingum eða hvort byggja eigi húsið á hefðbundin hátt. Einnig verður fólk að vera uppvíst um það að hönnunartíminn er langur, fólk getur ekki ætlast til þess að það geti komið með teikningu arkitekts á verkfræðistofu í dag og sótt einingateikningar, burðarþolsteikningar og lagnateikningar eftir viku eða svo, eins og um hefðbundið hús væri að ræða.